Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Photographers

Blogg rúnturinn okkar

* Litla yndislega fólkið *

Skólarnir

Atburðarteljari

Teljari

snúllurófa fædd í köbenhavnHildur & Bjarki

    

                  Elsku rúsínusnúllurnar mínar............Til hamingju með dótturina !!!!



'Eg get ekki beðið til jóla með að sjá hana...'Eg er að fara tjékka á flugfari....

Hildur & Bjarki

www.flickr.com/photos/exo3086

..'Oli Harðar tók nokkrar kúlumyndir..

Hildur & Bjarki

Bloggletin að drepa mig !

Gaurinn ætlar að láta bíða eftir sér, já það eru 8 vikur síðan ég fór fyrst af stað, 4 vikur síðan mér var sagt að ég yrði ekki stoppuð meir og 2 vikur síðan mér dreymdi að hann væri hættur við að fæðast.
'Eg held að ég sé búin að reyna allt mögulegt, auðvitað upp að vissu marki til að fá meiri verki en honum líður vel þarna og vill ekki koma.
Það verður spennó að sjá hvernig persóna hann verður seinna meir.

Við fórum í göngutúr í gær



l


Kósí veður... Mig langar á Snjóbretti !

Hildur & Bjarki

'I dag kvaddi ég frænda minn og vin hann Guðmund Eið í síðasta sinn.

Sporin inn í kirkjuna voru þung enda sérstaklega erfitt að kveðja fallegan ungan vin sem átti lífið fram undan.
Bjartur og góður með fallega sál og svo fallegt hjarta.

'Eg veit ekki með ykkur en hjá okkur hafa jólin þann tilgang að eyða góðum tíma saman og njóta tímans með stórfjölskyldunni í rólegheitum, auðvitað er gaman að fá gjafir og gefa og það fylgir bara jólunum..
Mér finnst litlu hlutirnir skipta mestu máli, fara út að labba á þorláksmessu, fara í kirkjugarðinn með blóm á aðfangadag og vona að snjórinn komi fyrir kl 6.

'Eg er búin að vera á bloggflakki og ég er með sting í maganum! Er fólk alveg búið að gleyma út á hvað jólin ganga? fólkið telur upp heilu blaðsíðurnar af gjöfum sem það fékk en alltaf kemur lína í endanum "..Mig langaði nú samt í svona...En fékk það ekki:( "
og þar með er hátíðin orðin leiðinleg og tilgangslaus.Fólk fer fram úr sér í gjafakaupum og pakkarnir teljast ekki alminnilegir nema þeir hafi kostað meira en heimildin á vísanu leyfir.
'Eg heyrði frá konu fyrir stuttu sem bað börnin sín og barnabörn um að gefa sér ekkert heimatilbúið, henni langaði einfaldlega ekki í svoleiðis dót vegna þess að því var ekki hægt að skipta.

'Eg er búin að njóta jólana en ég hef líka sest niður með sjálfri mér og hugsað um hvað margir njóta alls ekki jólana, svo ótrúlega margir sitja heima með hjartað fullt af sorg og óska þess að hátíðinni ljúki sem fyrst.

Lítum á þá sem standa okkur næst og hugsum um hvað við erum heppin að eiga fjölskyldu og vini sem elska okkur skilirðislaust.

Hildur & Bjarki



www.flickr.com/photos/exo3086

Hildur & Bjarki

Til hamingju með litla sæta prinsinn elsku 'Asta og Oddur...
...Velkomin í tilveruna okkar litli mann...

Af okkur er ekkert rosa mikið að frétta nema það að ég er orðin árinu eldri.. 'Eg var vakin með hring á miðvikudagsmorgninum, hann bara sætur í sér:)  Svo fékk´eg óvænt afmælisapartý seinna um daginn með fullt af kökum gestum og pökkum :)

Bjarki er á fullu í prófunum og er ýkt duglegur að læra þessa dagana :)

Litli prinsinn okkar er að drífa sig í heiminn. 'Eg er komin 31v og 2d og ég er búin að eyða eiginlega öllum deginum í dag upp á sjúkrahúsi í mónitor og skoðunum. 'Eg er búin að vera með hellings verki og ákvað að fara að láta tjékka á þeim í morgun og ljósmóðirin sagði að það væri nú ekki langt í  litla manninn minn, það er fullt að gerast sem á að gerast rétt fyrir fæðingu en planið er úr þessu að reyna að halda honum fram að 34viku semsagt í tæpar 3 vikur í viðbót, þá má hann koma.. Þangað til á ég að taka einhverjar "stopp-pillur" og það ég vona að þær virki, það er heldur snemmt að hann komi núna. Kanski eignast ég bara lítin jólasvein :) 

Núna er svo bara að demba sér í að klára jólaundirbúninginn.. ég er reyndar búin að þvo mesta af honum og bakaði í gærkvöldi ég á reyndar eftir að baka meir, held að þetta endist ekki fram að jólum :) Það er samt hellingur eftir að gera, klára að versla jólagjafirnar, jólahringerningin og að skreyta..
 
-H-

Hildur & Bjarki



Maður er nú ekki sviplaus þrátt fyrir ungan aldur

Hildur & Bjarki


9 Vikur til stefnu !"!"!"

Meðgangan gengur bara vel og kúlan orðin vel  stór og myndarleg ..

'Eg er reyndar orðin svoldið þreytt að þurfa að vakna í vinnuna kl4 á næturnar, sem betur fer vinn ég kringum nóg af allskyns kremum og snyrtivörum sem geta unnið á morgunmyglunni :)

'Eg er komin 31v í dag en ég held reyndar að prinsinn láti sjá sig eftir svona 4 -5 vikur,milli jóla og nýárs.

Þegar ég var ólétt af Kolbrúnu sætu Líf fór ég af stað þegar ég var komin 33 vikur en hún fæddist ekki fyrr en rúmum 3 vikum fyrir tíman.
Fjórar síðustu vikurnar lá ég og reyndi að vera eins kyrr og ég gat svo hún myndi nú ekki fæðast strax en við bjuggumst samt alla daga við því að þurfa að rjúka á spítalann hvenær sem var. 
Svo um nóttina 12 okt byrjaði vatnið að fara og við uppeftir nema ekkert meira gerðist. þannig ég var sett af stað með lyfjum og litlu skvísunni þar með gefið leyfi til að koma en hún fór sínar eigin leiðir og gerir enn, ég þurfti að vera með drippið í 2 sólahringa þar til hún loks ákvað að láta sjá sig.

Það er einhver tilfinning í mér, svona eins tilfinning og þegar ég fór af stað 7 vikum fyrir tíman með hana, einhvernvegin tilfinning að hann muni koma líka svona snemma, þess vegna er rúmið komið upp og ég er að byrja að þvo fötin hans. Svoldið snemmt kanski en hver veit. 

Þessi börn fara sínar eigin leiðir 

J'OLIN M'INHildur & Bjarki

VIÐ VORUM AÐ KAUPA JÓLATRÉ !"!"!"

 

MIG LANGAR SVO AÐ BYRJA AÐ SKREYTA ÞAÐ

Hildur & Bjarki

Mikið var vont að þurfa að dragast fram úr kl 4 í nótt til að fara í vinnuna!! Og í þessum kulda..jisúss !!
'Eg er ekki sú besta þegar kemur að því að vera jákvæður útí kuldan rokið og rigninguna, verð frekar bara smá döpur yfir því að sumarið skyldi yfirgefa mig svona fljótt..

'Eg vil geta sest hálf sofandi út á svalirnar á morgnana í mesta lagi á náttbuxum til að fyllast orku fyrir daginn, geta svo klætt mig í pils og labbað niðrí bæ í sólinni. 
Mig langar ekki vakna og komast varla fram úr fyrir kulda og þurfa að dúða mig í peysu húfu vettlinga og úlpu, stundum snjóbuxur til að komst í vinnuna. 

Ennn að sama skapi finnst mér ótrúlega kósí hvað það er orðið dimmt og mér finnst ekkert betra en að liggja undir sæng með fullt af kertum og heyra í rokinu..

..Veit ekki, kanski er ég bara óákveðin þessa dagana.. Væri samt til í að það væri ég sem stjórnaði veðrinu..    

Síða 1 af 2